Hreyfigrafík fyrir íþróttafélög
Leikdagurinn
byrjar hér
Leikmannakynningar, leikdagar, úrslit og auglýsingar á LED-skjáum, í útliti félagsins og öllum sniðum í einu. Án hönnunarforrita og án biðar.
1 smellur
öll snið: Reels, TikTok, YouTube, LED
30 sek.
frá leikmannalista að kynningu
0
hönnunarforrit sem þarf að kunna á
Myndbönd
Sjáðu kerfið í notkun
Tvö stutt myndbönd: leikmannakynningar í Pregame Studio og auglýsingar á skjáum hallarinnar í Pregame Arena.
Pregame Studio
Leikmannakynningar
Settu inn upptöku af leikmanninum. Kerfið klippir hann út, setur hann í útlit félagsins og skilar kynningunni í þeim sniðum sem þú þarft.
Pregame Arena
Auglýsingar á skjáum hallarinnar
Teiknaðu höllina, stilltu flokka fyrir þína auglýsendur og sæktu eitt niðurhal fyrir alla skjáina.
Pregame Studio
Grafík í anda félagsins
Settu inn liti, merki, letur og leikmenn einu sinni. Eftir það verður allt efni félagsins til á nokkrum smellum, í sama útliti, viku eftir viku.
Leikmannakynningar
Eitt sniðmát og kerfið gerir útgáfu fyrir hvern leikmann. Settu þær saman í liðskynningu fyrir fyrsta leik.
Útlit félagsins
Litir, merki, letur og styrktaraðilar félagsins í allri grafík, sjálfkrafa.
Leikdagur og úrslit
Næsti leikur, byrjunarlið, staðan í hálfleik og lokatölur sóttar úr leikjaskránni.
Klippiforrit með leikstjórn
Segðu hvað þú vilt sjá og kerfið velur bestu skotin úr myndefninu, með hægspilun og skiptingum.
Öll snið í einu
Instagram, Reels, TikTok, YouTube, Facebook og LED-skjáir úr sama verkefni. Ekkert endurgert.
Teymi og hlutverk
Ritstjórar vinna efnið, stjórnendur samþykkja og lesaðgangur sækir tilbúið efni.
Pregame Arena
Auglýsingakerfi fyrir LED-skjái hallarinnar
Haltu utan um auglýsendur, samninga og flokka. Kerfið raðar umferðunum og þú sækir eina skrá fyrir alla skjáina.
Leikvangurinn teiknaður
Horn, ritaraborð og stigatafla á grunnmynd vallarins, í réttum stærðum.
Þínir flokkar
Þú stillir flokka fyrir þína auglýsendur, með þínum heitum og þeim skjátíma sem hver flokkur á. Kerfið raðar umferðunum.
Auglýsingaritill
Merki, texti og lifandi bakgrunnur. Kerfið stingur upp á útfærslum út frá litum og merki.
Skýrslur fyrir auglýsendur
Birtingar í hverjum leik, eftir flokkum og tímabilum, tilbúið til að senda.
Grunnmynd vallarins
HORN 1 · HORN 2
STIGATAFLA
RITARABORÐ
HORN 3 · HORN 4
Þínir flokkar · Þinn skjátími
Frír prufuaðgangur
Svona virkar prufan
01
Sæktu um
Fylltu út formið. Það tekur hálfa mínútu.
02
Við höfum samband
Við heyrum í þér, stofnum svæðið þitt og sendum þér innskráningu.
03
Prófaðu allt
Í 7 daga hefur þú alla helstu eiginleika. Á meðan gerum við þér tilboð í uppsetningu og áskrift.
Áskriftir
Sniðið að þínu félagi
Félög eru ólík að stærð, með misjafnan fjölda liða, deilda og skjáa. Þess vegna gerum við tilboð í uppsetningu og áskrift fyrir hvert félag. Byrjaðu á fríum prufuaðgangi í 7 daga og sendu okkur upplýsingarnar í forminu hér fyrir neðan.
Studio
Pregame Studio
Fáðu tilboð í uppsetningu og áskrift
- Leikmannakynningar, leikdagar og úrslit
- Öll snið í einu: Reels, TikTok, YouTube og LED
- Útlit félagsins í allri grafík
- Ritstjórar, stjórnendur og lesaðgangur
Arena
Pregame Arena
Fáðu tilboð í uppsetningu og áskrift
- Auglýsendur, samningar og flokkar
- Leikvangurinn teiknaður með öllum skjáum
- Ein skrá fyrir alla skjáina
- Skýrslur fyrir auglýsendur
Umsóknin er komin
Takk! Við höfum samband fljótlega og setjum aðganginn upp með þér.
Frír prufuaðgangur
Prófaðu í 7 daga
Þú færð þitt eigið svæði með öllum helstu eiginleikum Studio og Arena. Í prufunni er vatnsmerki á allri grafík og ekki hægt að hlaða niður efni. Það opnast um leið og þú velur áskrift.
- Allir helstu eiginleikar Studio og Arena
- Þitt eigið svæði: nafn.pregame.studio
- Ekkert greiðslukort
- Efnið bíður þín þegar þú velur áskrift
Spurningar
Spurt og svarað
Hvað gerist eftir 7 daga?
Þú getur skoðað efnið áfram en ekki breytt því. Um leið og þú velur áskrift opnast allt aftur, án vatnsmerkis og með niðurhali.
Af hverju er vatnsmerki í prufunni?
Svo að efni úr prufunni fari ekki í birtingu. Vatnsmerkið hverfur af öllu efninu þegar áskrift er virk.
Þarf ég greiðslukort?
Nei. Prufan er frí og hættir sjálf. Við höfum samband ef þú vilt halda áfram.
Get ég boðið fleirum í teymið?
Í prufunni ert þú einn notandi. Með áskrift bætir þú við ritstjórum, stjórnendum og lesaðgangi.
Er þetta fyrir allar greinar?
Já: körfubolta, fótbolta, handbolta og fleiri. Leikvangurinn í Arena er teiknaður eftir greininni.